Dreggjar II – Borgarbókasafnið Spönginni, Spönginni 41

Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir og Soffía Sæmundsdóttir sýna textílverk, málverk og teikningar.“Að fara að heiman og koma sér fyrir á nýjum stað þar sem allt er ókunnugt hreyfir við hugsuninni og opnar á nýja hluti. Rýmið sem skapast virðist stórt og mikið pláss og frelsi. En hvað kemur þá? Hvað situr eftir?“Sýningin er afrakstur mánaðardvalar tveggja listakvenna frá Íslandi á gestavinnustofum í Düsseldorf í Þýskalandi.Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir er listakona og hönnuður.

Borgarbókasafnið í Spönginni í Grafarvogi

Verk hennar jafnt í hönnun sem listsköpun eru gjarnan undir áhrifum frá veðráttu og náttúru. Þau eru full af andstæðum líkt og íslensk náttúra, eins og kraftmikill stormur eða draumkennt íslenskt landslag. www.astaclothes.isSoffía Sæmundsdóttir hefur verið virk á myndlistarvettvangi undanfarinn áratug.

Soffía er einkum kunn af málverkum sínum, en vinnur einnig teikningar og grafík og sækir innblástur í náttúru og landslag og veltir fyrir sér sambandi manneskjunnar við það. http://soffia-malarinn.blogspot.com/Verið öll velkomin á opnun sýningarinnar, miðvikudaginn 15. júlí kl. 17!Nánari upplýsingar:


Sigríður Stephenesen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is



Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.