Bangsaspítalinn – Heilsugæslan Grafarvogi 23.sept kl 10.00-15.00

Í tilefni alþjóðlega bangsadagsins verður haldinn bangsaspítali á 3 heilsugæslustöðvum á Höfuðborgarsvæðinu:
– Heilsugæslan Efstaleiti
– Heilsugæslan Grafarvogi
– Heilsugæslan Sólvangi

Öllum börnum, ásamt foreldrum/forráðamönnum, er boðið að koma í heimsókn með veika eða slasaða bangsa.

Tilgangur verkefnisins er tvíþættur: Annars vegar til að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk og hins vegar að gefa læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn

Heimsóknin fer þannig fram að hvert barn kemur með sinn eigin bangsa. Gott er að ræða fyrirfram við barnið um það hvernig bangsinn er veikur (hvort hann sé t.d. með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót). Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda.

Vonumst til þess að sjá sem flesta!

Lýðheilsufélag læknanema
https://www.facebook.com/pages/Bangsaspítali/386161021453461?fref=ts

 

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.