Aftakaveður á morgun – fólk hvatt til að halda sig heima / No school tomorrow 14. feb 2020

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna fyrir allt landið vegna aftakaveðurs á morgun, föstudag 14. febrúar.

Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið frá kl. 7 í fyrramálið sem þýðir að fólk á ekki að vera
ferðinni nema brýna nauðsyn beri til.

Reglulegt skólahald fellur niður en leikskólar og grunnskólar verða engu að síður opnir með lágmarksmönnun fyrir það fólk sem sinnir neyðarþjónustu, löggæslu, slökkvilið og björgunarsveitarfólk og aðra sem þurfa nauðsynlega á vistun fyrir börn sín að halda.

Frístundaheimili opna þegar viðvörunum lýkur. Eins og staðan er núna er appelsínugul viðvörun í gildi til kl. 15:30

Fólk er hvatt til þess að halda sig heima í fyrramálið og fylgjast vel með tilkynningum frá almannavörnum í fjölmiðlum.

Samkvæmt spám á veður að ganga niður eftir hádegi og verður hægt að vera á ferðinni eftir kl. 15 að öllu óbreyttu.

Staðan verður endurmetin í fyrramálið.

https://reykjavik.is/frettir/aftakavedur-morgun-folk-hvatt-til-ad-halda-sig-heima

Veðurviðvaranir: https://www.vedur.is/vidvaranir/svaedi/rvk
Weather alerts: https://en.vedur.is/alerts/area/rvk


Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.