- HEIM
- FRÉTTIR
- MYNDIR
- HVERFIÐ OKKAR
- AÐSENT EFNI
- ÍÞRÓTTIR
- UM OKKUR
U20/2.FLOKKUR KVENNA ERU DEILDARMEISTARAR 2022
Stelpurnar unnu glæsilegan 4-1 sigur gegn ÍBV í dag og urðu því deildarmeistarar með 39 stigum úr 14 leikjum sumarsins.
Frábær árangur sem félagið er stolt af. Innilega til hamingju!
Fyrirliðar liðsins í sumar hafa verið þrír, Hrafnhildur Árnadóttir, Tinna Haraldsdóttir og Sóley Vivian og hafa skipt því hlutverki á milli sín á tímabilinu. Markahæstar í sumar hafa verið þær Emilía Sævarsdóttir með 20 mörk og Aníta Björk Sölvadóttir með 17 mörk. Markmaður liðsins er Elínóra Ýr Kristjánsdóttir.
Lið sumarsins og deildarmeistarar 2022:
Elínóra Ýr Kristjánsdóttir, Silja Fanney Angantýsdóttir, Tinna Haraldsdóttir, Laila Þóroddsdóttir, Hrafnhildur Árnadóttir, Bríet Rut Þórðardóttir, Eva María Smáradóttir, Auður Dís Kristjánsdóttir, Ásdís Birna Þórarinsdóttir, Anna Kolbrún Ólafsdóttir, Lilja Hanat, Marta Björgvinsdóttir, Sara Montoro, Anna María Bergþórsdóttir, Sunna Gló Helgadóttir, Hjördís Erla Björnsdóttir, Emilía Sif Sævarsdóttir, Adna Mesetovic, Aldís Tinna Traustadóttir, Aníta Björg Sölvadóttir, Elva Katrín Elvudóttir, Freyja Dís Hreinsdóttir, Gréta Lind Jökulsdóttir, Guðrún Helga Guðfinnsdóttir, Hlín Heiðarsdóttir, Hrefna Margrét Guðmundsdóttir, María Eir Magnúsdóttir, Sóley Vivian Eiríksdóttir, Sóllilja Harðardóttir, Vala Katrín Guðmundsdóttir, Íris Brynja Sigurdórsdóttir og Ísabella Sara Halldórsdóttir.
Þjálfarar liðsins og liðsstjórar: Júlíus Ármann Júlíusson, Theódór Sveinjónsson, Arna Björgvinsdóttir og Kristbjörg Harðardóttir
#FélagiðOkkar
2.FLOKKUR KARLA ER ÍSLANDSMEISTARI 2022!!
Strákarnir unnu glæsilegan 5-0 sigur gegn ÍA í kvöld og munu enda í 1. sæti þrátt fyrir að þremur leikjum sé enn ólokið.
Frábær árangur sem félagið er stolt af.
Innilega til hamingju!
Tveir samningar voru undirritaðir í dag, annars vegar var um lóðarvilyrði fyrir umhverfisvæna byggingu við Ártúnshöfða. Hins vegar var undirritaður samningur um makaskiptasamning á lóðum milli Reykjavíkurborgar og SORPU bs.
Umhverfisvæn bygging á iðnaðarlóð
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Ingvi Jónsson framkvæmdastjóra Klasa og Karl Þráinsson f.h. Lifandi landslags ehf. undirrituðu í dag samning um lóðarvilyrði fyrir umhverfisvæna byggingu á lóð við Ártúnshöfða.
Umhverfisvæna byggingingin er hluti af verkefninu Re-Inventing Cities á vegum C40, en það eru samtök yfir 90 stórborga sem vinna saman í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.
Efnt var til alþjóðlegrar samkeppni C40 samtakanna og Reykjavíkurborgar um sjálfbæra uppbyggingu á vannýttu borgarsvæði. Tillagan Lifandi landslag varð hlutskörpust en þar að baki standa T.ark, Jakob+Macfarlane arkitektar í París, Landslag, Efla, EOC verkfræðistofa í París og CNRS í París. Samkvæmt tillögunni er Lifandi landslag hringlaga bygging með blandaðri byggð íbúða, stúdentagarða, þjónustu og athafnarýma, í samspili náttúru og borgar.
Stærsta timburbygging á Íslandi
Samkvæmt tillögunni á að nota lágkolefnabyggingarefni, þ.m.t. timbur, til þess að draga úr kolefnisspori og stuðla að hringrásarhagkerfi þannig að úrgangur verði minni en ella.
Lifandi landslag er kolefnislaus bygging sem hefur jákvæð áhrif á umhverfið og skýlir staðbundnu vistkerfi og verður stærsta timburbygging á Íslandi. Græn svæði þekja 75% af lóðinni, þar á meðal græn þök og stór garður í miðjunni.
Hringlaga bygging
Með uppbyggingunni við Elliðaárvog-Ártúnshöfða er verið að breyta iðnaðarsvæði í nýjan umhverfisvænan þéttbýliskjarna. Byggingin er hringlaga og í miðjunni er garður sem er hannaður sem staðbundið vistkerfi og mun taka mið af náttúrunni í kring. Verkefnið mun skapa nýtt vistkerfi í fallegri náttúru Elliðaárinnar og verður í nálægð við Borgarlínuna
Makaskipti á lóðum
Þá undirrituðu Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, og Jón Viggó Gunnarsson framkvæmdastjóri SORPU bs. makaskiptasamning um lóðir í Reykjavík. SORPA bs. framselur lóðina að Sævarhöfða 21 til Reykjavíkurborgar en um er að ræða 9000 fermetra leigulóð. Reykjavík framselur til SORPU bs. lóðinni Lambhagavegi 14 í Grafarvogi sem er ríflega 11000 fermetrar að stærð. SORPA bs. hefur hug á að byggja atvinnuhúsnæði undir starfsemi endurvinnslustöðvar á lóðinni.
HLJÓÐFÆRANÁM Í EINKATÍMUM FYRIR BÖRN
Nú er búið að opna fyrir skráningu í Skólahljómsveit Grafarvogs fyrir námsárið 2022-2023 á Rafrænni Reykjavík https://reykjavik.is/gjaldskra-fyrir-skolahljomsveitir
Námsgjöld eru 15.771 kr. á önn og hljóðfæragjald 4.799 á önn. Hægt er að nýta fristundastyrk í námsgjöldin.
Nánari upplýsingar á Skólahljómsveit Grafarvogs (skolahljomsveitir.is)
Hafið samband við stjórnanda með tölvupósti ef einhverjar spurningar vakna;
einar.jonsson (hjá) rvkskolar.is
Reykjavíkurborg og Betri samgöngur ohf. undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf vegna þróunar og uppbyggingar Keldnalands og Keldnaholts og flýtingu uppbyggingar innviða tveggja Borgarlínuleiða.
Viljayfirlýsingin tekur til samstarfs um þrjá þætti:
Viljayfirlýsingin byggir á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og ríkið undirrituðu í september árið 2019. Þá var ein af forsendum lífskjarasamninganna sem undirritaðir voru í apríl 2019 að ríkið og Reykjavíkurborg kæmust að samkomulagi um að hefja skipulagningu Keldnalands og Keldnaholts.
Forsenda uppbyggingar á svæðinu er að Borgarlína tengi það áður en íbúar flytja inn og segja má að fyrirhuguð byggð verði fyrsta hreina Borgarlínu-hverfið í sögu borgarinnar. Til að gera það að veruleika hafa aðilar náð saman um að flýta framkvæmdum við innviði fyrir Borgarlínu til Keldna og fyrir Efra- Breiðholt. Hvort tveggja mun styrkja farþegagrunn Borgarlínu verulega til framtíðar.
Þróun á Keldnalandi og Keldnaholti miðast við ákvæði aðalskipulags um blandaða íbúðabyggð og atvinnustarfsemi á svæðinu til framtíðar. Óskað verður eftir aðkomu Arkitektafélags Íslands og Félags íslenskra landslagsarkitekta að samkeppni um rammaskipulag reitsins, sem skal vera á milli þverfaglegra teyma. Þátttakendur skili með tillögum sínum meðal annars ítarlegum upplýsingum um skipulag samgangna innan hverfis, að því og frá, ásamt mati á áhrifum skipulagstillögunnar á bílaumferð á stofn- og tengibrautum, umferð hjólandi og farþegafjölda Borgarlínu og strætisvagnaleiða. Miða skal við að samkeppnisgögn verði tilbúin í ágúst og að dómnefnd ljúki störfum í desember 2022.
Ófrávíkjanleg forsenda fyrir framangreindum breytingum á undirbúnings- og framkvæmdatíma Borgarlínu er að breytingarnar verði ekki til þess að þeim framkvæmdum sem nú eru í fyrsta áfanga Borgarlínu seinki og að þær framkvæmdir sem nú er verið að undirbúa í fyrsta áfanga Borgarlínu verði ávallt í forgangi.
Skráning er hafin á sumarnámskeiðin 2022!Námskeiðin verða með sama sniði og í fyrra, en bæði er val um að setja saman dag úr tveimur mismunandi íþróttagreinum yfir daginn. Einnig verður aftur vinsæla Fjölgreinanámskeiðið í ágúst, þar fá börnin að prófa hinar ýmsu greinar félagsins yfir vikuna.
Sumarnámskeið 2022 Sjá nánari upplýsingar um sumarnámskeiðin hér https://fjolnir.is/felagid-okkar/sumarnamskeid-2022/ Skráning er hafin á https://fjolnir.felog.is/
„Við viljum búa vel að fjölskyldufólki en reynslan hefur sýnt að fjölskyldufólk flýr í nágrannasveitarfélög þar sem þjónustan reynist betri. Við ætlum að tryggja öllum börnum leikskólapláss frá 12 mánaða aldri. Þá leggur flokkurinn áherslu á svokallaðan foreldrastyrk fyrir foreldra sem kjósa að dvelja heima með börnin sín eftir fæðingarorlof, til tveggja ára aldurs,” segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík en frambjóðendur flokksins kynntu málefnaáherslur flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar á blaðamannafundi í Perlunni í dag.
Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að skapa barnvæna borg sem setur fjölskyldur í forgang.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á jöfn tækifæri fyrir öll börn að stunda íþróttir og tómstundir. „Við ætlum að hækka frístundakortið í 70 þúsund krónur árlega og tryggja aðgang að kortinu fyrir börn frá 5 ára aldri. Þá viljum við að uppbyggingu íþróttamannvirkja í borginni sé forgangsraðað í þágu barna og ungmenna.”
Sjálfstæðisflokkurinnn vill tryggja að höfuðborgin verði eftirsóknarverður staður fyrir fólk á öllum æviskeiðum. „Við viljum borgarumhverfi sem laðar að sér hæfileikafólk með spennandi búsetukostum, fjölbreyttum samgöngum og úrvali atvinnutækifæra – meðal annars með því að setja á fót nýsköpunarþorp í Örfirisey með áherslu á hugvitsdrifna starfsemi. Við ætlum jafnframt að búa betur að eldri Reykvíkingum með uppbyggingu lífsgæðakjarna og auknum afsláttum af fasteignagjöldum,” segir hún.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að Reykjavík verði borg sem ryður veginn fyrir þá sem vilja sækja fram. „Þessu vill flokkurinn meðal annars ná fram með því að einfalda kerfin, innleiða rafræna stjórnsýslu og tryggja 30 daga afgreiðslufresti innan borgarkerfisins,” segir Hildur.
Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að ráðast í kröftuga húsnæðisuppbyggingu með skipulagi nýrra hverfa samhliða þéttingu byggðar innan hverfa sem hafa til þess svigrúm. Samhliða ætlar flokkurinn að fjölga 15 mínútna hverfum og efla nærþjónustu hverfanna. „Við leggjum áherslu á öflugri verslunarkjarna innan borgarhverfa og hyggjumst setja á laggirnar stofnstyrki til þeirra sem vilja hefja starfsemi í auðum rýmum.”
Jafnframt er lögð áhersla á lausn samgönguvandans með fjölþættum lausnum. „Við viljum vinna að lausn vandans strax. Hefja uppbyggingu Sundabrautar á næsta kjörtímabili, innleiða hjólreiðaáætlun af krafti, fjölga heitum stígum í borginni og fara í öfluga uppbyggingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Frjálsir valkostir í samgöngum er lykilatriði,” segir Hildur.
Flokkurinn vill enn fremur að grunnþjónusta verði efld. Sorphirða verði öflugri og betur verði staðið að snjóruðningi að vetri og götusópun að vori. „Hrein borg – fögur torg er gamal slagorð Sjálfstæðisflokksins sem sannarlega er tilefni til að endurvekja, enda borgin sóðaleg og illa hirt,” segir Hildur.
„Sjálfstæðisflokkurinn berst fyrir höfuðborg sem byggist á frjálsum valkostum, jöfnum tækifærum, frjálsu framtaki og hagkvæmum rekstri, til að mynda með minna stjórnkerfi, fækkun borgarfulltrúa og minni umsvifum í samkeppnisrekstri,” segir Hildur.
Sjálfstæðisflokkurinn mun setja eftirfarandi mál á dagskrá fyrir borgarstjórnarkosningar í vor:
Hægt er að lesa meira um komandi kostningar hér á vef Reykjavíkurborgar
Fjölmenningarverkefni Lyngheima
„Halló“
Í tilefni af degi móðumálsins, sem var þann 22. febrúar síðastliðinn, fannst okkur tilvalið að gera samvinnuverkefni sem allar deildar leikskólans tóku þátt í.
Vikurnar 7.-25. mars voru tileinkaðar fjölmenningu leikskólans og unnið var með hin ýmsu þjóðerni, lönd og tungumál. Unnið var með jörðina og að jörðin væri okkar allra, sama hvaðan við komum þá eigum við jörðina saman og það er verkefni okkar allra að hugsa vel um hana. Stóra verkefnið okkar í ár er því að skoða jörðina og fræðast um það hvaðan við erum, bæði börn og starfsfólk i leikskólanum Lyngheimum. Við fögnum fjölbreytileikanum og tökum á móti honum með opnum örmum, fræðum, lærum og dreifum kærleikanum.
Við höfum dregið ýmsan lærdóm af ferlinu t.d eins og við eigum ekki öll sama uppruna, við tölum ekki öll eins, menning okkar er ólík, en samt getum við öll verið hér á Lyngheimum í sátt og samlyndi og borið virðing fyrir hvort öðru.
Hér að neðan eru myndir frá verkefninu
Með bestu kveðjum starfsfólk Lyngheima