- HEIM
- FRÉTTIR
- MYNDIR
- HVERFIÐ OKKAR
- AÐSENT EFNI
- ÍÞRÓTTIR
- UM OKKUR
Það er spenna á heimilinu. Fyrsti skóladagurinn er á morgun. Skólataskan er tilbúin og búið að merkja blýanta og tréliti. Kannski er spennan þó fyrst og fremst hjá foreldrunum sem minnast síns fyrsta skóladags. Mamman man eftir að hafa setið á græna borðinu með Fjólu sem átti flottustu tússlitina. Það mátti ekki lita fast með þeim. Pabbinn man að það var erfitt að vera ári yngri en allir hinir í bekknum þegar hann var látinn hoppa yfir sex ára bekk og byrja í sjö ára bekk. Hann vonaði að hann myndi fljótlega eignast vin þótt hinir krakkarnir hefðu eins árs forskot.
Skóladrengurinn verðandi veltir þessu minnst fyrir sér og skilur kannski ekki alveg hvers vegna þetta er svona mikið mál. Þetta eru jú bara sömu krakkarnir og á leikskólanum.
Skólabyrjun á hausti er tilfinningaþrunginn tími. Mörg börn eru kvíðin á meðan önnur eru full tilhlökkunnar. Þau sem hafa orðið einelti eða líður ekki vel í skólanum eru kvíðin og jafnvel óttaslegin. Þau eiga jafnvel erfitt með að sofna. Þau sem eiga góða vini í bekknum og eiga auðvelt með námsefnið geta varla beðið.
Það er alltaf gaman að eignast nýjan yddara og tréliti. Og kannski gula reglustiku úr plasti sem ekki er hægt að brjóta. Innikaupalistinn er langur. Sumt er til, annað þarf að kaupa. Skólabyrjun á hausti getur verið þung byrði fyrir budduna á barnmörgum heimilum og á heimilum þar sem horfa þarf í hverja krónu. Þau heimili eru mörg.
Það er mikilvægt að vera meðvituð um að það er ekki alltaf gaman að byrja í skólanum. Það er vont að vera barnið sem ekki getur keypt allt sem stóð á innkaupalistanum. Að vera barnið sem ekki gat fengið ný föt þetta haustið og er vaxið upp úr því sem til er. Þá er gott að vita af Hjálparstarfi kirkjunnar, Rauða krossinum og öðrum sem geta útvegað föt á vægu verði eða jafnvel gefins.
En sem betur fer er fjöldi barna sem nýtur þess að hefja skólagöngu að hausti. Barna sem hlakka til að koma í nýja skólastofu eða gamla og vel þekkta. Barna sem hlakka til að fá nýja sessunauta eða að fá að sitja hjá gömlum vinum.
Biðjum fyrir börnum sem eru að byrja í skólanum. Fyrir því að skólastjórnendur og kennarar, foreldrar og börnin sjálf taki á öllu einelti, og komi í veg fyrir að farið sé illa með börn. Fyrir því að fullorðið fólk þori að taka ábyrgð og vera fullorðin þegar kemur að ofbeldi. Guð gefi öllum, börnum og fullornum, góðan vetur í skólum landsins.
Um mig:
Áhugi minn á tölvum og internetinu kviknaði í námi mínu í Kennaraháskóla Íslands. Í kennaranáminu lærði ég að senda tölvupóst í gegnum skel, fara á spjallrásir í gegnum skel, búa til heimasíður og að forrita. Þegar ég útskrifaðist frá Kennaraháskólanum árið 1997 kom ekkert annað til greina en að fara í tölvunarfræði í Háskóla Íslands. Ég útskrifaðist þaðan árið 2000 og fór þá að vinna sem yfirmaður í hugbúnaðarfyrirtæki og var þar í 7 ár. Ég var þá tilbúin að gera eitthvað annað og kenndi ég stærðfræði á unglingastigi í grunnskóla í Reykjavík í eitt ár áður en við fjölskyldan fluttum svo sumarið 2008 til Bandaríkjanna. Maðurinn minn lauk doktorsnámi sínu þar í febrúar síðastliðnum og við erum núna alkomin heim. Verkefnin mín í dag eru þríþætt: ég er að vinna efni fyrir ný námskeið fyrir staerdfraedi.is, svo er ég að þróa nýjar leiðir og möguleika í kennslu á netinu sem og að kenna stærðfræði á framhaldsskólastigi.
Um vefinn:
Mér finnst frábært að geta nýtt möguleik internetsins. Sjálf þurfti ég að fara í aukatíma í stafsetningu þegar ég byrjaði í MR. Þá tók ég strætó frá Seltjarnarnesi inn í Mjódd. Það fór mikill tími í ferðalög, þetta var um miðjan dag svo ég var oft að missa af ýmsu sem var að gerast. Ég lærði reyndar svakalega mikið svo þetta var vel þess virði – en í dag eru allt aðrir möguleikar í boði.
Þegar kemur að stærðfræðikennslu, þá er það bara þannig að ákveðinn hluti nemenda nær efninu strax, en stór hluti nemenda þarf að fá kennsluna endurtekna nokkrum sinnum til þess að ná skilningi á efninu og myndbandakennsla leysir það frábærlega.
Ástæðan fyrir því að ég fór af stað með vefinn staerdfraedi.is er að ég vil að nemendur hvar sem er á landinu geti lært hvar sem er, hvenær sem er og á þeim hraða sem þeim hentar.
Ég byrjaði á að kenna einkatíma í gegnum netið, en er núna aðallega með námskeið. Mér finnst námskeiðin meira spennandi þar sem ég get náð til margra nemenda í einu en ég hef verið að nýta mér Google Hangout til að hitta nemendur, gefið nemendum mínum aðgang inn á gagnvirka æfingavefi og verið með ýmsar útfærslur til þess að nemendur fái sem mest út úr námskeiðunum.
Næstu vikur mun ég byrja með mjög spennandi námskeiðspakka sem eru, til að byrja með, sérstaklega hugsaðir fyrir nemendur í 9. og 10. bekk – bæði fyrir þá sem vantar góðan grunn í stærðfræði en einnig fyrir þá sem vilja fá góðar einkunnir til að geta valið hvaða framhaldsskóla þeir fara í.
Bestu kveðjur,
Gyða Guðjónsdóttir
Stærðfræðikennari
Stærðfræði.is
Við byrjuðum rekstur þann 20. ágúst 2012 og erum því nýorðin eins árs. Við höfum öll langa reynslu af gleraugnasölu og að sjálfsögðu ríka þjónustulund.
Við bjóðum Grafarvogsbúum 40% afslátt af margskiptum glerjum, ef keyptar eru umgjarðir hjá okkur.
Tilboðið gildir út sept.
Nýtt útibú Íslandsbanka á Höfðabakka
Nýtt útibú Íslandsbanka opnaði á Höfðabakka 9 mánudaginn 9. september þegar útibú Íslandsbanka við Gullinbrú, í Hraunbæ og Mosfellsbæ sameinuðust í eitt útibú.
Í útibúinu á Höfðabakka eru 23 reynslumiklir starfsmenn allra þessara þriggja útibúa þ.a. viðskiptavinir eiga að geta gengið að sínum góðu ráðgjöfum líkt og fyrr.
Markmið sameiningarinnar er að bjóða upp á öflugt útibú í austurhluta höfuðborgarinnar sem veitir bæði fyrirtækjum og einstaklingum fyrirmyndar fjármálaþjónustu. Sameiningin er einnig liður í að auka hagræði í rekstri útibúanets Íslandsbanka en bankinn rekur 19 útibú eftir sameininguna.
Útibússtjóri hins nýja sameinaða útibús er Ólafur Ólafsson, áður útibússtjóri við Gullinbrú, aðstoðarútibússtjóri er Karen Rúnarsdóttir, áður útibússtjóri í Mosfellsbæ og Ýlfa Proppe Einarsdóttir, fyrrverandi útibússtjóri í Hraunbæ, er viðskiptastjóri einstaklinga. Viðskiptavinir munu halda reikningsnúmerum sínum við sameininguna og hraðbankar verða áfram staðsettir í Mosfellsbæ og Hraunbæ.
Húsnæði nýja útibúsins, sem er hluti af gamla Tækniháskólanum, hefur verið endurnýjað. Lögð er áhersla á gott aðgengi fyrir viðskiptavini en nýja útibúið liggur nálægt stórum umferðaræðum og er í 5 til 15 mínútna akstursfjarlægð frá öllum hverfum höfuðborgarinnar. Þá verða næg bílastæði hjá nýja útibúinu.
Þess er gaman að geta að nýja útibúið má finna á samfélagsmiðlinum facebook undir nafninu Íslandsbanki Höfðabakka og hvetja starfsmenn folk til að kynna sér það.
Starfsfólk útibúsins hvetur viðskiptavini til að renna í heimsókn til að skoða nýja útibúið, hitta sína ráðgjafa og tengiliði og samgleðjast við þessi tímamót, Ætíð kaffi á könnunni.
Nýtt útibú Íslandsbanka var opnað á Höfðabakka 9 í síðustu viku þegar útibú Íslandsbanka við Gullinbrú, í Hraunbæ og Mosfellsbæ sameinuðust í eitt útibú. Húsnæðið, sem er hluti af gamla Tækniháskólanum, hefur verið endurnýjað. Lögð er áhersla á gott aðgengi fyrir viðskiptavini en nýja útibúið liggur nálægt stórum umferðaræðum og er í 5 til 15 mínútna akstursfjarlægð frá öllum hverfum höfuðborgarinnar. Þá verða næg bílastæði hjá nýja útibúinu.
Í útibúinu á Höfðabakka eru 23 reynslumiklir starfsmenn. Markmið sameiningarinnar er að bjóða upp á öflugt útibú í austurhluta höfuðborgarinnar sem veitir bæði fyrirtækjum og einstaklingum fyrirmyndar fjármálaþjónustu. Sameiningin er einnig liður í að auka hagræði í rekstri útibúanets Íslandsbanka en bankinn rekur 19 útibú eftir sameininguna.
Útibússtjóri hins nýja sameinaða útibús er Ólafur Ólafsson, áður útibússtjóri við Gullinbrú, aðstoðarútibússtjóri er Karen Rúnarsdóttir, áður útibússtjóri í Mosfellsbæ og Ýlfa Proppe Einarsdóttir, fyrrverandi útibússtjóri í Hraunbæ, er viðskiptastjóri einstaklinga. Viðskiptavinir munu halda reikningsnúmerum sínum við sameininguna.
Ólafur Ólafsson útibústjóri segir opnunarvikuna hafa gengið frábærlega vel og breytingin jákvæð í alla staði. Í nýju útibúi er samankomin mikil þekking og reynsla starfsmanna allra þriggja útibúanna á nýjum stað.
Þetta kemur fram m.a. í viðtali við Ólaf Ólafsson, útibústjóra, á myndskeiðinu hér fyrir neðan.
Það gekk frábærlega þrátt fyrir umhleypingasamt veður,
Þau voru vel veðurbarinn þegar þau komu inn í kaffisamsætið kl. 15:00
Þá biðu þeirra rjúkandi vöfflur, rjómi og sulta, ásamt snittum og heitu kaffi.
Það mætu tæplega 50 Korpúlfar til leiks og þau dreifðust vel um allt hverfið, hefðum aðeins þurft að eiga fleiri ruslatínur,
Því mörg fundur fyrir í mjöðmunum eftir daginn ef þau ekki höfðu ruslatínur.
Öllu ruslinu var safnað saman á kerru Nikulásar Friðriks verkefnastjóra fegrunarátaksins og Korpúlfs og það mældist 200 kg á Sorpu.
Síðast voru það 130 kg. á hreinsunardeginum í júlí.
Í lokin voru sagðar margar gamansögur frá deginum, nikkan dregin fram og sungið.
Þau hittu marga íbúa sem dáðust að framtaki þeirra og við megum öll vera afar stolt af þeim.
Leynileikhúsið í Grafarvogi og Grafarholti!!
Leynileikhúsið stendur að venju fyrir skapandi og skemmtilegum leiklistarnámskeiðum fyrir börn í 2.-8.bekk í Grafarvogi og Grafarholti.
Námskeiðin eru haldin í Rimaskóla og Ingunnarskóla og hefjast núna eftir helgi.
Það eru því að verða síðustu forvöð að skrá nemendur á námskeiðin, en skráningar fara fram á heimasíðu Leynileikhússins, www.leynileikhusid.is.
Fyrstir koma – fyrstir fá!
GLEÐI GLEÐI GLEÐI!!!!